Vetrarfrí

Author: Hildur Knútsdóttir

Subject: Íslenskar skáldsögur; Spennusögur

Publisher: JPV útgáfa (2015-11-29)

18164

Vetrarfrí ebook cover

Hvað ef þú stendur skyndilega frammi fyrir því að hið óhugsandi hefur gerst?

Það er síðasti dagur fyrir vetrarfríið. Bergljót hlakkar til að fara í tíundabekkjarpartý og Bragi bróðir hennar ætlar að gista hjá vini sínum. Foreldrarnir stefna á rómantíska sumarbústaðarferð. En allar áætlanir fara fyrir lítið þegar furðuleg plága brýst út. Eftir það hugsar enginn um neitt annað en að bjarga lífi sínu.

Hildur Knútsdóttir hefur áður sent frá sér skáldsöguna Slátt og unglingasöguna Spádóminn. Vetrarfrí er hörkutryllir sem engin leið er að leggja frá sér fyrr en að lestri loknum.

☆ ☆ ☆ ☆ – „Skemmtilega skrifað og frumlegt ævintýri, sem tekst á við flóknar og erfiðar spurningar um hvað felst í því að vera hetja.“ – Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir / Fréttablaðið (Um Spádóminn)